• 00:00:00Kynning
  • 00:00:43Steinunn um dánaraðstoð
  • 00:12:47Mesta CO2 frá upphafi mælinga
  • 00:19:16Kveðja

Spegillinn

Dánaraðstoð og vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda

Umræðu um dánaraðstoð skýtur reglulega upp kollinum hér á landi, þingsályktunartillögur, frumvörp og skýrslur hafa litið dagsins ljós og í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöld var fjallað um Jón Grímsson sem sótti um dánaraðstoð í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Steinunn Þórðardóttir, formaður læknafélagsins, segir það verði ekki aftur snúið verði þetta skref tekið. Reynsla frá þeim löndum þar sem þetta hefur verið leyft sýni líka mörkin verði sífellt óljósari. Þá megi ekki gleyma því þetta eðlisbreyting á hlutverki lækna. Freyr Gígja Gunnarsson talar við Steinunni.

Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar kemur fram, þrátt fyrir mikinn þrýsting og fögur fyrirheit um draga hratt og mikið úr losun helstu gróðurhúsalofttegunda hefur styrkur þeirra þvert á móti aukist og hefur aldrei mælst meiri en í fyrra. Reyndar hefur ekki verið jafnmikill koltvísýringur í lofthjúp Jarðar síðan fyrir þremur til fimm milljónum ára, þegar meðalhitinn var tveimur til þremur gráðum hærri en og yfirborð sjávar tuttugu til þrjátíu metrum hærra. Styrkur gróðurhúsalofttegunda eykst líka hraðar það sem af er þessari öld en dæmi eru um. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og nýja skýrslu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, þar sem fram kemur gildandi aðgerðaáætlanir ríkja heims séu óravegu frá því tryggja hlýnun Jarðar fari ekki umfram 1,5 gráður.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

30. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir