• 00:01:10Orkukrísa í uppsiglingu í Evrópu
  • 00:05:05Methiti sjávar við Ísland
  • 00:14:19Öldrun Norðurlandabúa

Spegillinn

Orkukrísa, sjávarhiti og aldraðir Norðurlandabúar

Átökin í Mið-Austurlöndum og hækkandi orkuverð hefur kostað Evrópusambandsríkin um fjórtán milljarða evra undanfarin mánuð, sagði Dan Jörgensen orkumálastjóri ESB eftir neyðarfund um ástandið sem haldinn var í dag. Hann segir nauðsynlegt draga úr eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti; ástandið eigi eftir vara í langan tíma, jafnvel þótt samið verði um frið á morgun

og viðamikil samantekt á þúsundum rannsóknarniðurstaðna frá árunum 1993 til 2021 bendir til þess, svo lítið sem 0,1 gráðu hlýnun sjávar á áratug getur leitt til ríflega sjö prósenta minnkunar lífmassa fiskitegunda í Norðurhöfum á sama tímabili - meðaltali.

Frjósemi á Norðurlöndum hefur aldrei verið minni en og lýðfræðileg samsetning þjóðanna er breytast. Norðurlandabúar hafa aldrei verið jafngamlir og þeir eldast hratt, er haft eftir Tomasi Nieomysl rannsóknarstjóra hjá rannsóknarstofnunni Nordregio sem gefur annað hvert ár út skýrslu um stöðu norðursins.

Birt

31. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,