• 00:01:02Of gott tilboð til að hafna
  • 00:07:53Málarekstur gegn Ísrael

Spegillinn

Síminn vill kaupa vísi og útvarpshluta Sýnar og Ísland hluti af málssókn á hendur Ísrael

Síminn og Sýn tilkynntu í morgun fyrrnefnda félagið hefði hug á kaupa Vísi.is, annan af tveimur vinsælustu fréttavefjum landsins, og útvarpsstöðva Sýnar, meðal annars FM957 og Bylgjuna. Fyrir eigendur Símans er þetta rökrétt skref á þeirri leið sem félagið hefur verið á; fyrir stjórnendur Sýnar gæti þetta verið leiðin út úr tilvistarkreppunni sem félagið hefur verið í. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Kolbein Tuma Daðason fréttastjóra Sýnar.

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, þar sem farið er fram á Ísrael verði dæmt brotlegt gegn alþjóðasáttmálanum um þjóðarmorð með hernaði sínum á Gaza. Ísland bættist þar með í hóp nær tuttugu þjóða, sem eiga þátt í málsókn Suður-Afríku með svokallaðri meðalgöngu. Þórdís Ingadóttir prófessor við HR er annar höfunda álitsgerðar Íslands, Ævar Örn Jósepsson talaði við hana.

Birt

12. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,