• 00:00:00Heilsa
  • 00:00:16Forstjóri Play
  • 00:12:33Bilderberg í Stokkhólmi
  • 00:19:41Kveðja

Spegillinn

Forstjóri Play og leynifundur í Stokkhólmi

Í vikunni hefur gustað um flugfélagið Play, forstjórinn ásamt öðrum vill yfirtaka það, skrá það af markaði og skila inn íslensku flugrekstrarleyfi, svo fátt eitt nefnt. Efasemdir hafa heyrst um áform yfirtökuhópsins og starfsmennirnir eru uggandi. Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, hefur trú á verkefninu en viðurkennir eins og staðan í dag ljóst hluthafar í Play, meðal annars lífeyrissjóðir og hann sjálfur, tapi peningum gangi yfirtakan eftir.

Sögufrægt hótel í miðborg Stokkhólms er fullbókað þessa dagana 12. til 15. júní. Í vikunni vöktu auknar öryggisráðstafanir í kringum Grand Hotel athygli, lögreglubílar og sprengjuleitarhundar voru á ferli en Stokkhólmslögreglan vildi lítið segja annað en á hótelinu væri einkafundur, allt hótelið bókað vegna hans en ekkert frekara látið uppi. SVT sænska ríkissjónvarpið hafði eftir talsmanni lögreglunnar von væri á gestum sem hefðu með sér lífverði og eitthvað yrði um lokanir í kringum hótelið. Af þessari blokkbókun hafði frést á vordögum - og svo varð ljóst Bilderberg-fundur ársins yrði í Stokkhólmi téða daga og birtur listi yfir þátttakendur og umræðuefni á fundinum.

Frumflutt

13. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,