Spegillinn

Þjóðaratkvæðagreiðsla, lögleysa í lóðaleigumálum, hitaörmögnun og hitaslag í hitabylgjum

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra segir þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snúist hvorki um aðild aðlögum heldur hvort taka eigi skref áfram. Þjóðin taki afstöðu - ekki bara þingmenn, og því þetta hárréttur tími fyrir þessa atkvæðagreiðslu. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Hönnu Katrínu.

Ekkert bólar á frumvarpi um heildarlöggjöf um lóðaleigusamninga. Víðir Smári Petersen lagaprófessor segir brýnt setja einhvern lagaramma. Álitaefnum þar sem gríðarlegir hagsmunir eru undir fari fjölgandi í lögleysunni. Æ fleiri lóðaleigusamningar renni út á verðmætum þéttingarreitum borgarinnar og lágmarks leikreglur þurfi setja sem fyrst.

María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Víði.

Tugir og hundruð milljóna Evrópubúa búa við nánast óbærilegan og jafnvel lífshættulegan hita þessa dagana, í annarri hitabylgju sumarsins. Hitamet halda áfram falla, jafnt á Bretlandi sem meginlandinu, og daglega berast fréttir af dauðsföllum sem rekja beint eða óbeint til hitans. En hvað er svona hættulegt við hitann? Ævar Örn Jósepsson kannar málið og rætt er við Sasan Nobakht bráðalækni.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt

25. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,