Suðurhluti Evrópu er að skrælna í hitabylgju og hitamet hafa fallið á Spáni og í Portúgal. Um fimmtíu þúsund manns hafa flúið að heiman undan eldum í Izmir héraði í Tyrklandi. Í El Granado, nærri landamærum Spánar og Portúgals, fór hitinn í 46 stig á laugardaginn og hefur aldrei mælst hærri í júní og enn heitara varð í Mora í Portúgal.
Hálendisvakt Landsbjargar hófst í gær þegar Björgunarfélag Árborgar hélt á fyrstu vakt sumarsins inn í Landmannalaugar. Margar hálendisleiðir eru enn lokaðar en vegirnir opnast einn af öðrum. Fjallaskálar eru komnir í fullan rekstur og ferðamenn mættir þar sem fært er orðið.
Frumflutt
30. júní 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.