Spegillinn

Þingið framundan og sænsk börn sem sprengja sprengjur

Guðmundur Ari Sigurjónsson og Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins - tókust á um hvað er framundan. Það kannski segja forsmekkurinn þingvetrinum hafi fengist í gær þegar deilt var um hver ætti hvaða herbergi í þinghúsinu; skrifstofustjóri Alþingis er búinn kveða upp sinn dóm, Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínu herbergi en málinu virðist hvergi nærri lokið.

Undanfarið hafa dunið sprengingar í Svíþjóð nær daglega. Í janúarmánuði einum hefur verið sprengt rúmlega þrjátíu sinnum við íbúðarhús og verslanir og flestar eru sprengingarnar í suðurhluta Stokkhólms. Lögreglan segir ástandið mjög alvarlegt og það takmarkist ekki aðeins við Stokkhólm.

Frumflutt

31. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,