Nýr forseti ASÍ, smábátasjómenn í ólgusjó
Georg Páll Skúlason var í dag kjörinn forseti Alþýðusambandsins. Við ræðum við hann um deilurnar innan ASÍ, helstu verkefni, stefnu, gagnrýni á framgöngu seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra…
Ef innganga í Evrópusambandið yrði samþykkt verður að breyta ákvæðum i stjórnarskrá og leyfa framsal valds til þess; en það er flókið verkefni og alls ekki einhlítt hvernig að þvi yrði staðið segir Davíð Þór Björgvinsson lögfræðingur.
Danir vilja auka viðveru hers í Færeyjum – áforma æfingar, eftirlitsflug orrustuþotna og heimsóknir herskipa. Heini í Skorini, dósent í alþjóðastjórnmálum við Fróðskaparsetur Føroya, segir að atburðir þessa árs, einkum á Grænlandi, hafi breytt þessari sýn Færeyinga á varnarmál.
Úlfur hrellir íbúa á Suðvestur-Jótlandi, því hann hefur ítrekað birst í húsagörðum og við útiveitingahús.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.