Spegillinn

Talning á strokulöxum og hitnandi heimur

Enginn strokulax sást í fyrra í myndavélateljurum sem Hafrannsóknastofnun hefur komið fyrir í þrettán ám. 30 strokulaxar sem veiddust voru greindir og hægt var rekja til strokstaða með samanburði á arfgerðum strokulaxa og klakhænga. 42 blendingar greindust í 15 ám og eldri erfðablöndun fannst hjá seiðum í 23 ám. Flestir blendingarnir fundust í ám nærri eldissvæðum en þó voru dæmi um blendinga sem fundust í tvö til þrjúhundruð kílómetra fjarlægð frá eldinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt sem birtist í sumar um áhrif sjókvíaeldis á villta laxastofna 2024. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatns og eldisfisks á Hafrannsóknastofnun.

Fátt bendir til þess ríki heims nái því markmiði sem þau skuldbundu sig til reyna þegar þau staðfestu Parísarsamkomulagið - nefnilega hindra loftslagið hlýni um meira en hálfa aðra gráðu umfram meðalhitann sem hér ríkti seinni hluta nítjándu aldar. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um annað heldur notkun kola og annars jarðefnaeldsneytis áfram aukast og þar með losun gróðurhúsalofttegunda´. Á sama tíma virðist áhersla margra öflugustu iðnríkja heims á loftslagsmálin fara minnkandi í takt við ört vaxandi vígvæðingu. Undanfarin tvö ár hafa verið þau heitustu í sögu veðurmælinga og árið í ár er enn eitt árið sem við fáum fréttir af hitabylgjum á hitabylgjur ofan. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson, fagstjóra loftslagsmála á Veðurstofu Íslands.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Frumflutt

12. ágúst 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,