Leiðtogafundur Nato í Haag hefst með formlegum hætti á morgun en í kvöld snæða leiðtogarnir saman kvöldverð. Björn Malmquist er í Haag og hefur fylgst með því sem þar hefur gerst og ræddi líka við forsætisráðherra.
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á manndrápsmálinu á Edition - hótelinu fyrir tíu dögum er flókin og mörgum mikilvægum spurningum er enn ósvarað. Maðurinn sem var myrtur ásamt dóttur sinni glímdi við alvarlega nýrnabilun og var illa farinn sökum veikinda sinna.
Umdeilt þynningarsvæði mengunar umhverfis álverið og málmblendiverksmiðjuna á Grundartanga í Hvalfirði heyrir brátt sögunni til. Það er þó allsendis óvíst hvort kvaðir á jörðum kringum verksmiðjurnar sem banna búsetu, skepnuhald og matvælaframleiðslu falli niður.
Frumflutt
24. júní 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.