Spegillinn

Trump margnefndi Ísland í Davos og málarekstur gegn mótmælendum hvalveiða

Donalds Trumps var beðið með mikilli eftirvæntingu á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss. Hann talaði þar í annan klukkutíma - fór mikinn um efnahagsundur sem ætti sér stað í Bandaríkjunum en talaði líka um utanríkismál. Bandaríkin hefðu áratugum saman ausið í NATO en ekkert fengið til baka og bæði hann um Grænland. Trump nefndi Ísland mörgum sinnum í ræðunni og átti þar öllum líkindum við Grænland en engu síður vekur þetta allt ugg og óróa segja þingmennirnir Jón Gnarr (C) og Guðlaugur Þór Þórðarson (D).

Aðalmeðferð er hefjast í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn þeim Sahar Babei og Elissu May Phillips, sem klifruðu upp í möstur tveggja hvalveiðibáta til mótmæla hvalveiðum Íslendinga. Katrín Oddsdóttir verjandi þeirra telur stjórnarskrárvarinn rétt þeirra til mótmæla hafa veirð brotinn.

Frumflutt

21. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,