Jón Gnarr um stöðu Grænlands, vörn Karls Wernerssonar og Belgía að verða dópríki
Þing Norðurlandaráðs hefur staðið alla vikuna í Stokkhólmi. Þar er fundað á vettvangi Norðurlandanna, þar með talið Vestnorræna ráðsins sem Lögþing Færeyja, landsþing Grænlands og Alþingi stofnuðu. Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar er formaður Vestnorræna ráðsins og sat þingið nú í fyrsta skipti. Hann segir alveg ljóst að pólitísk staða Grænlands sé sterk og að Grænland sé að verða vinsælasta stelpan á ballinu ef sú samlíking sé skoðuð.
Sonur Karls Wernerssonar segist hafa lagt traust sitt á föður sinn þegar hann tók við eignarhaldi á einu dýrmætasta félagi hans. Karl segir þrotabú hans gera tilkall til bóta sem hann telur sig eiga inni eftir að hafa afplánað refsingu vegna dóms sem hefur verið hnekkt.
Þetta kemur fram í greinargerðum sem skilað var til Héraðsdóms Reykjaness fyrir nokkru og Spegillinn fékk afhentar í vikunni. Sagt var frá ákærunni á hendur Karli, sambýliskonu hans og syni í maí. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferðin standi sjö virka daga í mars á næsta ári.
Belgía er á góðri leið með að verða að eiturlyfjaríki, segir dómari í Antwerpen í opnu bréfi sem birt var á heimasíðu belgískra dómstóla í gær. Skipulögð glæpasamtök hafa hreiðrað um sig og náð áhrifum í stofnunum ríkisins, þar á meðal dómskerfinu segir dómarinn, sem hefur þurft að fara huldu höfði vegna hótana. Höfnin í Antwerpen er einn helsti áfangastaður eiturlyfja sem smyglað er inn til Evrópu.
Frumflutt
31. okt. 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.