Ársreikningur Reykjavíkurborgar var kynntur í dag, þar kom fram að borgin var rekin með rúmlega tíu milljarða króna afgangi, þremur milljörðum krónum betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir - þetta er nokkuð sérstakur ársreikningur, hann er frá tíð meirihlutans sem sprakk með eftirminnilegum hætti í byrjun árs. Nú er komin nýr borgarstjóri og nýr meirihluti og honum fylgja væntanlegar nýjar áherslur;
En er ársreikningurinn staðfesting þess að rekstur borgarinnar sé á réttri leið, óttast minnihlutinn að þessum árangri verði fórnað á altari sveitastjórnarkosninga sem eru handan við hornið.
Til að ræða þetta og meira til eru þau hingað komin; Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins, Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata -
Frumflutt
2. maí 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.