Telur ástandið á leigubílamarkaði óviðunandi og hvernig verða 48 daga strandveiðar?
Tæp 28 þúsund tonn af þorski þyrfti til að stunda 48 daga standveiðar í sumar miðað við sama fjölda báta og gerðir voru út í fyrra. Þetta kemur fram í minnisblaði til stjórnarflokkanna við stjórnarmyndun fyrr í vetur. Talið er ólíklegt að hægt væri að sækja þessar veiðiheimildir án þess að skerða kvóta annarra útgerða. Talsmaður smábátaeigenda segir þetta fráleitar tölur. Reynslan sýni allt önnur og minni afköst strandveiðiflotans.
Kristín Sigurðardóttir fór nýverið og kynnti sér þær miklu breytingar sem hafa orðið á íslenskum leigubílamarkaði á skömmum tíma. Þar er slegist um farþega, stundum bókstaflega, bílarnir eru margir en farþegarnir fáir. Hægt er að hlusta á pistil Kristínar frá því í Speglinum í gær í spilara RÚV og lesa vefskýru hennar á ruv.is.
Skiptar skoðanir eru um núverandi fyrirkomulag. Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, telur að ekki sé hægt að una við óbreytt ástand. Líka heyrast ásakanir um kynþáttafordóma og Eyrún Eyþórsdóttir, mannfræðingur og kennari í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, segir hætt við að bílstjórar með erlendan bakgrunn upplifi sig enn meira jaðarsetta.
Frumflutt
23. apríl 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.