• 00:00:30Leigubílar viðbrögð
  • 00:12:00Strandveiðar - úr minnisblöðum

Spegillinn

Telur ástandið á leigubílamarkaði óviðunandi og hvernig verða 48 daga strandveiðar?

Tæp 28 þúsund tonn af þorski þyrfti til stunda 48 daga standveiðar í sumar miðað við sama fjölda báta og gerðir voru út í fyrra. Þetta kemur fram í minnisblaði til stjórnarflokkanna við stjórnarmyndun fyrr í vetur. Talið er ólíklegt hægt væri sækja þessar veiðiheimildir án þess skerða kvóta annarra útgerða. Talsmaður smábátaeigenda segir þetta fráleitar tölur. Reynslan sýni allt önnur og minni afköst strandveiðiflotans.

Kristín Sigurðardóttir fór nýverið og kynnti sér þær miklu breytingar sem hafa orðið á íslenskum leigubílamarkaði á skömmum tíma. Þar er slegist um farþega, stundum bókstaflega, bílarnir eru margir en farþegarnir fáir. Hægt er hlusta á pistil Kristínar frá því í Speglinum í gær í spilara RÚV og lesa vefskýru hennar á ruv.is.

Skiptar skoðanir eru um núverandi fyrirkomulag. Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, telur ekki hægt una við óbreytt ástand. Líka heyrast ásakanir um kynþáttafordóma og Eyrún Eyþórsdóttir, mannfræðingur og kennari í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, segir hætt við bílstjórar með erlendan bakgrunn upplifi sig enn meira jaðarsetta.

Frumflutt

23. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,