• 00:01:09Hagræðingartillögur - Björn Ingi
  • 00:09:00Bráðamóttakan fær 600 fermetra
  • 00:14:48Milljarða tehneyksli skekur Íran

Spegillinn

Milljarða sparnaður, sjúklingar í gáma og stóra te hneykslið

Tillögur um tugmilljarða sparnað í ríkisrekstri upp úr ábendingum almennings voru kynntar í dag. Sameiningra stofnana, niðurlagning sjóða, breytingar á lögum um opinbera starfsmenn og jafnlaunavottun eru á meðal tillagnanna.

Í byrjun þessa árs lágu fimmtíu og fimm sjúklingar á bráðamóttökunni sem hefðu átt vera farnir annað. Spítalinn hefur fengið grænt ljós á reisa gámastæðu þar sem verða tuttugu rúm og þótt hún leysi ekki vandann er forstöðuhjúkrunarfræðingur bjartsýnn á hún hjálpi til.

Te er einfaldur drykkur, hversdagslegur og ódýr, svona yfirleitt. Te er líka miðpunktur mesta fjársvika- og spillingarhneykslis í sögu Íslamska lýðveldisins Írans, þar sem milljarðar af opinberu runnu til einkafyrirtækis í tebransanum. Forstjóri þess var á dögunum dæmdur til 66 ára fangavistar og tveir fyrrverandi ráðherrar súpa líka seyðið af sínum þætti í ráðabrugginu.

Frumflutt

4. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,