• 00:00:48Kókaín -fíkn vaxandi hjá sjúklingum á Vogi
  • 00:07:05Gervigreind í málarekstri

Spegillinn

Kókaínfíkn vex og gervigreind rekur mál

Segja gervigreindarlögfræðistofa hafi nýlega unnið mál fyirr breskum dómstól, Málflutningsmaður flutti málið en allan undirbúning vann gervigreind. Hún er farin gegna ákveðnu hlutverki í réttarkerfi víða og líka því íslenska, nokkrar vefsíður bjóða upp á lögræðiráðgjöf hér.

Níu menn eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um hafa smyglað 106 kílóum af kókaíni frá Brasilíu til Straumsvíkur. Aldrei hefur lögregla lagt hald á svo mikið kókaín í einni sendingu. Í mars fundust 43 kíló af kókaíni í húsbíl í Norrænu. Hingað berst mikið af fíkniefnum ekki síst kókaíni og eftirspurnin virðist óþrjótandi. Stór hluti þeirra sem leita sér hjálpar á Vogi glímir við kókaínfíkn og hefur hlutfallið farið vaxandi segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ.

Birt

1. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,