• 00:00:12Breytt viðhorf á löngum tíma
  • 00:09:33Minnkandi fiskistofnar í hitnandi sjó

Spegillinn

Breytt viðhorf til lögreglu - og í lögreglu; hnignun fiskistofna í hlýnandi Norðurhöfum

Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, telur það ekki til marks um ótta meðal lögreglumanna þótt þeir skrifi ekki lengur undir lögregluskýrslur með nafni. Þetta merki miklu frekar þeir vilji vernda friðhelgi einkalífs síns og tækifæri til skilja lögreglubúninginn eftir í vinnunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir breyttar aðstæður og breytt viðhorf til lögreglustarfa við Fjölni.

Viðvarandi - eða bara krónísk - hlýnun sjávar veldur mikilli og verulega uggvekjandi hnignun lífríkis í norðurhöfum, þar sem ætla svo lítið sem 0,1 gráðu hlýnun á áratug valdi meðaltali um 7,2 prósenta rýrnun fiskistofna á sama tímabili. Þetta er meginniðurstaða stórrar og mikillar rannsóknar spænskra vísindamanna, þar sem rýnt er í frumgögn, niðurstöður yfir 700.000 rannsókna á afkomu nær 34.000 fiskistofna af 1.566 tegundum frá 1993 til 2021. Jónas Jónasson sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun ræðir þetta við Ævar Örn Jósepsson.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Birt

30. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,