Spegillinn

Vaxtaákvörðun Seðlabankans, samstarf við ESB í varnarmálum og undanþágur í aðildaviðræðum við ESB.

Meginvextir Seðlabankans voru hækkaðir úr 7,25% í 7,50% í dag og einhugur ríkti innan peningastefnunefndar vaxtahækkun væri nauðsynleg. Það ræðst á næstu 167 dögum hvort forsendur kjarasamninga haldist og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, viðurkennir hann hafi meiri áhyggjur en áður af forsenduákvæði kjarasamninga. Hann vill þó ekki spá um hvort stefni í harða kjarabaráttu í haust.

Yfirlýsing um samstarf Íslands og Evrópusambandsins var staðfest í dag í Brüssel af þeim Þorgerði Katrínu Gunnardóttur, utanríkisráðherrra, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB. Undirritun yfirlýsingarinnar hafði verið frestað í nóvember út af ákvörðun ESB um verndaraðgerðir vegna málmblendis. Þorgerður Katrín hitti embættismenn hjá NATO í morgun og átti einnig fund með framkvæmdastjóra viðskipta hjá ESB um undanþágur vegna losunarheimilda í ETS kerfinu.

Það er flókið en ekki ómögulegt undanþágur eða sérlausnir þegar ríki gerir samning við Evrópusambandið. Þetta sagði Gunnar Pétursson, prófessor í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík, í erindi sem hann hélt á Akureyri í dag. Hann segir eðlilegt mörgum þyki erfitt skilja hvað felist í fara í viðræður um aðild ESB. Umræðan geti verið óskýr.

Birt

18. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,