Spegillinn

Vargöld í friðsælli Bláskógabyggð og stríð í Íran

Júdókempa, garðyrkjufræðingur á sjötugsaldri og þrítugur Íslendingur sem nýverið var dæmdur fyrir tilraun til manndráps eru meðal sex sakborninga sem ákærðir eru fyrir halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og ræna af honum ævisparnaðinum. Martraðir eftir árásina halda vöku fyrir manninum. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.

„Ég held flestum Bandaríkjaforsetum frá írönsku byltingunni hafi langað til ráðast inn í Íran en enginn verið nógu vitlaus til gera það þangað til núna," segir Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga meðal annars, aðspurður um líklegar ástæður ólöglegra árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Árásir þeirra síðastnefndu á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjum þeirra ættu vekja Íslendinga til umhugsunar. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Guttorm.

Stríðsrekstur hefur oft verið réttlættur með vísan til trúar og vilja guðs og virðist slík réttlæting lifa góðu lífi vestanhafs, ef marka flóð tilkynninga undanfarna daga um málflutning bandarískra herforingja sem vísa til dómsdags og endaloka heims til brýna hermenn í stríði við Íran. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt

5. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,