Kosningar í Danmörku, þjóðaratkvæði um Evrópusambandsviðræður
Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur kom löndum sínum á óvart í dag með því að boða til þingkosninga eftir tæpar fjórar vikur, þriðjudaginn 24. mars. Kjósendur viti fyrir hvað hún standi, sagði hún, og það, hvort hún haldi áfram sem forsætisráðherra, velti fyrst og fremst á því, hversu sterkt umboð kjósendur gefa flokki hennar, Jafnaðarmönnum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jórunni EInarsdóttur í Danmörku og Hallgrím Indriðason fréttamann.
Umræðan um mögulegar aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið komst á flug eftir að forsætisráðherra sagði stefnt að þjóðaratkvðagreiðslu um áframhald viðræðna á „næstu mánuðum." Hvað þýðir þetta - og hvað finnst stjórnarandstæðingum um það? Freyr Gígja Gunnarsson kannaði málið og ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, og Ólaf Adolfsson, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Birt
26. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.