Spegillinn

Loftslagsmál, byggðakvóti og umdeildur körfuboltaþjálfari

Veðurlag hefur um margt verið óvenjulegt í vetur. Hér voru hlýindi langt fram eftir hausti en miklar froststillur og þurrkur einkenna byrjun þessa árs. Óvenju hlýtt hefur verið á Grænlandi en óvenju kalt í Danmörku og Norður-, Mið- og Austurevrópu almennt - og líka óvenjuþurrt. Í sunnanverðri álfunni hefur hins vegar gengið á með úrhellisrigningu og miklum flóðum. hve miklu leyti rekja þetta til loftslagsbreytinga og hvernig er það gert? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar allsherjarendurskoðun á úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta. Þetta er gert með vísan í úttekt Ríkisendurskoðunar, þar sem kerfið er harðlega gagnrýnt. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Örn Pálsson, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda.

Forsvarsmenn íþróttafélagsins Aþenu eru ósáttir við hversu langan tíma mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið sér í afgreiða kvörtun vegna álits embættis samskiptaráðgjafa Íþrótta- og æskulýðsstarfs á þjálfunaraðferðum körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Þeir telja álitið hafa valdið Brynjari, félaginu og iðkendum óafturkræfum skaða. Freyr Gígja Gunnarsson reifar þetta mál.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt

18. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,