• 00:00:00Heilsa
  • 00:00:22Bandaríkin útúr öllu
  • 00:15:40Mercosur samningurinn samþykktur
  • 00:19:16Kveðja

Spegillinn

Brotthvarf Bandaríkjanna og Mercosur-samningur samþykktur

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í vikunni Bandaríkin hygðust segja sig frá starfi og fjármögnun 66 alþjóðastofnana, -samtaka og -sáttmála af ýmsu tagi, þar sem starfsemi þeirra og markmið samræmdust ekki stefnu og hagsmunum Bandaríkjanna. Í 31 tilfelli eru þetta stofnanir og undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna, en 35 eru sjálfstæðar, fjölþjóðlegar stofnanir og samtök sem Bandaríkin hafa átt aðild og fjármagnað mismiklu leyti.

Mercosur samningurinn - stærsti fríverslunarsamningur sem Evrópusambandið hefur gert, var samþykktur af hálfu aðildarríkjanna í dag, eftir viðræður sem staðið hafa í tuttugu og fimm ár. Með samnningnum verður til markaðssvæði með meira en sjö hundruð milljón íbúum í Evrópu og fjórum ríkjum Suður Ameríku.

Frumflutt

9. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,