• 00:00:42Grindavíkurnefndin,framtíðin og framboðið
  • 00:08:47Ólga í Búlgaríu
  • 00:13:38Rio Tinto stefnir íslenska ríkinu

Spegillinn

Hvernig verður kosið í Grindavík, ólga í Búlgaríu og þóknun Rio Tinto fyrir dóm

Það eru tvö ár síðan Grindavík var rýmd. 10. nóvember 2023 bjuggu um 3.800 í bænum. eru á níunda hundrað skráðir með lögheimili í Grindavík þó þeir hafi ekki allir þar næturstað. Grindavíkurnefndin hefur lagt til í sveitarstjórnarkosningum í vor verði þeim sem áttu lögheimili í Grindavík þegar rýmt var en hafa flutt sig síðan gefinn kostur á melda sig inn á kjörskrá í Grindavík frekar en kjósa þar sem þeir búa

Tugir og jafnvel hundruð þúsunda Búlgara knúðu í gær ríkisstjórn landsins til þess standa við loforð sem hún gaf þjóðinni í síðustu viku en sveik skömmu síðar. Búlgaríuforseti segir bara eitt í stöðunni: Afsögn ríkisstjórnarinnar og nýjar kosningar - sem yrðu þær áttundu á rúmum fimm árum.

Ríó Tinto, sem á álverið í Straumsvík, hefur stefnt íslenska ríkinu og krafist þess úrskurður yfirskattanefndar fyrir tveimur árum verði felldur úr gildi. Deilan snýst um þóknun sem álverið hefur greitt móðurfélaginu sínu í hálfa öld.

Frumflutt

2. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,