• 00:00:00Heilsa
  • 00:00:17Fæðuöryggi
  • 00:09:18Viðhorf og meðferð á fíkniefna- og kynferðisbrotum
  • 00:19:38Kveðja

Spegillinn

Fæðuöryggi og neyðarbirgðir matvælaframleiðenda; Viðhorf og meðferð fíkniefna- og kynferðisbrotaog

Öruggt framboð á matvælum er eitt af mikilvægustu hlutverkum stjórnvalda í flestum löndum og á flestum tímum, segir í inngangi skýrslu Torfa Jóhannessonar doktors í landbúnaði og sérfræðings í fæðuöryggi og byggðamálum, Neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu. Torfi Jóhannesson, sérfræðingur í fæðuörykki og byggðamálum, segir það hafa komið sér mest á óvart hve berskjaldaður orkugeirinn er. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Torfa.

Kynferðisbrot og fíkniefnabrot eru þeir brotaflokkar sem valda Íslendingum hvað mestum áhyggjum og hafa lengi gert.

Refsimatið var lengi framan af ólíkt, fíkniefnadómir þungir og efri rammi lögjafarinnar notaður í dómum fyrir innflutning og dreifingu en neðri mörkin frekar nýtt í kynferðisbrotamálum. Þetta hefur þó eitthvað breyst á seinni árum segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur..

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred.

Frumflutt

27. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,