• 00:00:00Heilsa
  • 00:00:31Unicef af Gaza
  • 00:08:11Áminningar
  • 00:13:57Eiturlyfjastríð í Karíba- og Kyrrahafi
  • 00:20:03Kveðja

Spegillinn

Neyðaraðstoð seytlar inn á Gaza en streymir ekki, áminningar til starfsmanna sveitarfélaga og eiturlyfjastríð

Þrátt fyrir í vopnahléssamkomulaginu kveðið á um óhindrað streymi lífsnauðsynlegra hjálpargagna inn á Gaza, þar á meðal grundvallarnæringar fyrir börn sem soltið hafa heilu hungri mánuðum saman, þá er raunveruleikinn annar, segir Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi sem er nýkomin frá Palestínu.

Um 100 starfsmenn hjá fimm stærstu sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hafa verið áminntir fyrir brot í starfi og 20 hefur verið sagt upp undangenginni áminningu. frá 2022. Nær 18.000 starfa hjá sveitarfélögunum.

Undanfarna mánuði hafa á sjöunda tug manna fallið í árásum bandaríska hersins á báta í Karíba- og Kyrrahafi undan ströndum Mexikó, síðast þrír um helgina. Hernaðarviðbúnaður Bandaríkjanna í og við Karíbahaf hefur stóraukist undanfarna mánuði og hefur aldrei verið meiri, Bandaríkjaforseti talar um stríð við eiturlyfjasmyglara en greinendur telja margir olía rótin.

Frumflutt

3. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,