• 00:00:33Fjármálaráðuneytið hafði áhyggjur af Play
  • 00:07:19Baráttan um fiskistofnana
  • 00:12:53efla heimastjórnir íbúalýðræði?

Spegillinn

Viðvörunarbjöllur vegna Play og baráttan um kvótann

Þegar Play lagðist á hliðina í lok september óskaði Spegillinn eftir þeim gögnum sem kynnu hafa verið útbúin í tengslum við fjárhagsvandræði flugfélagsins og gjaldþrot frá forsætisráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu, atvinnuvegaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu.

Ítrekað hafði verið fjallað um fjárhagsvandræði Play í fjölmiðlum en skyndilegt fall kom flestum í opna skjöldu. Nærri tuttugu þúsund farþegar urðu fyrir skakkaföllum þegar ferðum félagsins var skyndilega hætt og sumir urðu reiða fram háar upphæðir til komast heim.

Árum saman hefur ríkt ósamkomulag um ­skiptingu kvóta úr öllum deili­stofnum uppsjávarfisks sem Íslendingar eiga hlutdeild að, nema loðnu, og jafn lengi hefur verið veitt langt umfram veiðiráðgjöf vísindamanna. Deilistofnar eru fiskistofnar sem Ísland nýtir sameiginlega með öðrum þjóðum og ganga ýmist milli lögsagna ríkjanna eða um alþjóðlegt hafsvæði. Í þessu tilfelli eru þetta makríll, kolmunni og norsk-íslensk síld.

Íbúar í Múlaþingi eru ánægðari með aðgengi sitt stjórnsýslu sveitarfélagsins en íbúar Ísafjarðarbæjar. Þetta sýna tvær nýjar rannsóknir. Þeim var ætlað leiða í ljós hver væri besta leiðin til tryggja enginn verði undir þegar nýtt og öflugra sveitarfélag verður til úr nokkrum minni.

Frumflutt

14. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,