Skömmu fyrir miðnætti í gær sleit Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og fimmti varaforseti Alþingis, þingfundi, án samráðs við forseta Alþingis. Þetta varð til þess að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti sérstakt ávarp við upphaf þingfundar í morgun, þar sem hún sagði nýja og fordæmalausa stöðu komna upp í íslenskum stjórnmálum, þar sem stjórnarandstaðan neitaði í raun að viðurkenna úrslit þingkosninga með því að halda þinginu í gíslingu með lengra málþófi en dæmi séu um í sögunni.
Hún lauk svo máli sínu á yfirlýsingu um að hún og ríkisstjórnin hygðust verja Lýðveldið Ísland, stjórnskipan landsins og heiður Alþingis. Stór og þung orð, og umræðan í kjölfarið einkenndist líka af stórum orðum og þungum, þar sem stjórnarliðar hafa gengið svo langt að saka Hildi um atlögu að lýðræðinu og jafnvel líkt þessu við valdaránstilraun, en stjórnarandstæðingar saka stjórnina um yfirgang og skort á samráðs- og samningsvilja.
Svona hélt þetta áfram þar til fundi var frestað klukkan fimm, vegna fundar flokksformanna.
Ævar Örn Jósepsson ræddi þá stöðu sem uppi er við þau EIrík Bergmann Einarsson prófessor í stjórnmálafræði og Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, sem var þingfréttamaður RÚV um margra ára skeið.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Frumflutt
10. júlí 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.