Spegillinn

NATO, kynleg þróun háskólamenntunar, ræktun á riðuþolnu sauðfé

Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, NATO, skuldbinda sig til verja fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnar- og öryggismála á ári hverju frá og með 2035 eða fyrr. Yfirlýsing þessa efnis var samþykkt á leiðtogafundi bandalagsins í den Haag í Hollandi 25. júní. Leiðtogar NATO-landanna fagna þessu, aðrir eru gagnrýnni - en allir virðast sammála um fundurinn og niðurstaða hans marki tímamót. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Miklu fleiri konur er karlar hafa lokið háskólamenntun hér og sér ekki fyrir endann á þeim kynjahalla en sambærilegan halla er finna um allan heim. Hann hefur orðið til á löngum tíma og minnkar ekki fyrr en sókn kvenna í háskólanám mettast segir Jón Torfi Jónasson fyrrverandi prófessor í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur.

Áætlað er á bilinu 150 til 200 þúsund lömb með mótstöðu gegn riðuveiki hafi fæðst á nýliðnum sauðburði og hafa þau aldrei verið fleiri frá því aðgerðir gegn riðu hófust. Þá ætla um tíu prósent af íslenska fjárstofninum kominn með verndandi eða mögulega verndandi gen gegn riðu. Landsáætlun um útrýmingu riðiveiki gerir ráð fyrir Ísland verði orðið riðulaust eftir tuttugu ár. Ágúst Ólasson ræðir fið Eyþór Einarsson hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

25. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,