• 00:00:00Kynning
  • 00:00:20Benedikt um jarðhræringar
  • 00:10:18Stríð og friður í Evrópu
  • 00:19:10Kveðja

Spegillinn

Lokakaflinn hafin á Sundhnúksgígaröðinni og hernaðarandstæðingur um óróann í Evrópu

Lokakaflinn á Sundhnúksgígaröðinni er líklega hafinn, segir Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur og fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands. Sennilega er innistæða fyrir einu eldgosi í viðbót, hvenær það verður er erfiðara spá fyrir um. Og hvað gerist svo næst og hvenær? Í jarðfræðinni eru hundrað ár eins og eitt augnblik, segir Benedikt.

Það er óhætt fullyrða allir - eða í það minnsta nokkurn veginn allir - sem láta sig heiminn og meðbræður sína og systur einhverju varða yfirhöfuð óski þess friður komist á í Úkraínu. En fólk greinir á um, hvernig best koma því í kring. Línan hjá stjórnvöldum hér og í stærstum hluta Evrópu og Vesturlanda - þar á meðal þar til fyrir skemmstu, í Bandaríkjunum líka - hefur verið eina ráðið vopna Úkraínumenn, sjá þeim fyrir æ meiri og fullkomnari vopnum til beita í stríðinu við innrásarher Rússa, uns þeir reka hann af höndum sér og knýja stjórnvöld í Moskvu til samninga. Þetta gengur hins vegar ansi illa. Menn halda áfram murka lífið hver úr öðrum á vígstöðvunum og Rússar halda líka áfram mannskæðum árásum á borgaraleg skotmörk, innviði og jafnvel íbúðahverfi, en hvorugum stríðsaðila hefur miðað nokkuð sem heitið getur um langa hríð. Og hvorugur vill gefa nokkuð eftir. Og hvað er þá til ráða? Um það eru sem fyrr segir skiptar skoðanir og engin patentlausn til - en friðarsinnar eru þó sannfærðir um meira af því sama dugi skammt. Spegillinn hitti Stefán Pálsson sagnfræðing og hernaðarandstæðing máli.

Frumflutt

7. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,