• 00:00:00Kynning
  • 00:00:28Rammaáætlun
  • 00:09:30Hvernig ráðuneytin sjá fyrir sér að spara
  • 00:14:59Kosningar í Þýskalandi
  • 00:19:30Kveðja

Spegillinn

Rammaáætlun, sparnaðarhugmyndir ráðuneyta, kosningar í Þýskalandi

Í síðustu viku var sérstök umræða á þingi um alvarlega stöðu í orkumálum, flestir tóku undir staðan væri það sannarlega og viku líka rammaáætlun og viðruðu um hana efasemdir. Mikilvægt væri sameinast um næstu skref en þau yrðu ekki tekin á grundvelli rammaáætlunar sagði málshefjandinn. Orkumálaráðherra sagði núverandi stjórn ætlaði rjúfa kyrrstöðu sem ríkt hefði. Rammaáætlun hefur oft verið þrætuepli og átök um virkjanir hverfast gjarnan um hana - en í raun er ekki hægt búast við rammaáætlun geri meira en leggja grunn fyrir upplýsta umræðu og ákvörðun Alþings um virkjanakosti dómi Jóns Geirs Péturssonar formanns verkefnisstjórnarinnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann.

Aukin notkun á gervigreind, styrkir til kaupa reiðhjól en fyrst og fremst sameining stofnana og einfaldara stjórnkerfi eru meðal þeirra hugmynda sem ráðuneytin leggja til um hagræðingu í ríkisrekstri. Starfshópur forsætisráðherra er kominn með drög og ætlar skila fullgerðum tillögum á tilsettum tíma. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman og ræddi við Björn Inga Victorsson, forstjóra Steypustöðvarinnar, löggiltan endurskoðanda og formann starfsfhóps forsætisráðherra.

Þjóðverjar ganga til kosninga sunnudaginn 23. febrúar, hálfu ári fyrr en ætlað var, þar sem stjórn Jafnaðarmanna, Frjálslyndra demókrata og Græningja liðaðist í sundur. Ævar Örn Jósepsson fer yfir stöðu flokkanna eins og hún er í skoðanakönnunum nokkrum dögum fyrir kosningar og líkleg stjórnarmynstur.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

19. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,