Spegillinn

Deilt um rafmagnslínur, gervigreind og ritskoðun, grisjun sjóða og sjálfseignarstofnana

Síðan 2024 hefur verið heimild í lögum til skipa raflínunefndir sem eiga einfalda skipulagsmál í tengslum við flutningskerfi rafmagns. vill Landsnet fyrsta nefndin af þessu tagi verði skipuð um Holtavörðuheiðarlínu eitt. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan á liggja um leggjast gegn skipun nefndarinnar. Gréta Sigríður Einarsdóttir kynnti sér málið.

Þær fréttir bárust á dögunum nýtt gervigreindarforrit, DeepSeek, frá Kína, væri setja gervigreindarheiminn á annan endann. Því er haldið fram þessi nýja gervigreind standist þeirri fullkomnustu sem fyrir var, hinni bandarísku ChatGPT 4, fyllilega snúning, þrátt fyrir hafa verið hönnuð, þróuð og sett út í sýndarheiminn með aðeins brotabroti af þeim ógnarmiklu fjármunum sem fóru í þróun bandarísku fyrirmyndarinnar. Hún er þó ekki gallalaus. Einn galli - og sem hér er til umfjöllunar - er ritskoðunin sem DeepSeek stundar. Ævar Örn Jósepsson fékk Árna Matthíasson til ræða við sig um þetta.

Sjálfseignarstofnanir og sjóðir sem eru með skipulagsskrá verða sektaðar um sex hundruð þúsund skili forsvarsmenn þeirra ekki ársreikningi á tilsettum tíma. Sjóður sem Halldór Laxness stofnaði til mótmæla launalækkun er meðal þeirra sem brátt gætu heyrt sögunni til. Freyr Gígja Gunnarsson fékk Jónas B. Guðmundsson sýslumann til viðtals um málið.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Jón Þór Helgason.

Frumflutt

29. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,