Átök í Flokki fólksins, náttúru- og innviðagjald
Í byrjun árs sagði Guðmundur Ingi Kristinsson af sér sem mennta- og barnamálaráðherra. Nokkrum dögum síðar sagði Guðmundur Ingi að Inga Sæland formaður flokksins hefði krafist afsagnar…
Kosningarnar í Georgíu á morgun gætu orðið þær afdrifaríkustu síðan þetta fyrrum Sovétlýðveldi lýsti yfir sjálfstæði fyrir meira en þrjátíu árum. Framtíð landsins er í húfi, segir Salome Zourabichvili forseti Georgíu. Bretar státa sig gjarnan af því að eiginlegt þrælahald hafi aldrei tíðkast á Bretlandi. Þeir tala minna um það, að þegar mest lét voru þeir allra þjóða umsvifamestir í þrælakaupmennsku, í skjóli yfirburðastöðu sinnar á heimshöfunum. Og í þættinum verður rætt við tvo unga frambjóðendur í komandi þingkosningum.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.