• 00:00:33Réttindagæsla fatlaðra og mál Yazans Tamimis m
  • 00:12:35Rannsóknir á læsi barna m

Spegillinn

Réttindagæsla fatlaðra um mál Yazans Tamimi og læsisþjálfun

Áfram ríkir talsverð óvissa um hver örlög hins ellefu ára gamla Yazans Tamimi frá Palestínu verða. Til stóð fljúga með hann og foreldra hans til Spánar í gærmorgun en brottflutningi þeirra var frestað eftir dómsmálaráðherra barst beiðni þar um frá félagsmálaráðherra. Málið var síðan rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun þar sem ráðherrarnir gáfu óljós svör um næstu skref. Á laugardag færist ábyrgð á máli Yazans alfarið yfir á Ísland og ekki verður lengur hægt senda hann til Spánar. Yfirlögfræðingur réttindagæslu fatlaðs fólks gagnrýnir verklag lögreglu þegar átti flytja Yazan úr landi.

Læsi er það stór þáttur í lífi hvers einstaklings nái börn ekki tökum á lestri getur það haft áhrif á allt þeirra líf. Sérfræðingar hjá Miðstöð skólaþróunar í Háskólanum á Akureyri segja því nauðsynlegt viðhalda læsisþjálfun í eldri árgöngum grunnskóla og jafnvel lengur. Þá fjölgun nemenda með annað tungumál en íslensku mikil áskorun og dæmi um grunnskóla þar sem allt helmingur nemenda eru tvítyngdir.

Frumflutt

17. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,