• 00:02:39Netöryggi á stórum verslunardögum
  • 00:22:18Heimsókn í Kaffistofu Samhjálpar

Samfélagið

Netglæpir, stórir verslunardagar og Kaffistofa Samhjálpar

Síðustu tveir mánuðir ársins eru tími stórra verslunardaga og margir kætast yfir því en á þessum tíma árs herja líka netþrjótar á einstaklinga og reyna nýta sér kaupgleði og kæruleysi þeirra til svíkja út úr þeim pening. Guðrún Valdís Jónsdóttir, forstöðumaður ráðgjafarsviðs hjá Syndis, ætlar setjast hjá okkur í upphafi þáttar til segja okkur meira um netglæpi á þessum tíma árs og hvernig skal forðast þá.

Kaffistofa Samhjálpar hefur verið í fréttum síðustu daga. Stofnunin missti nýlega húsnæði sitt til 20 ára í Borgartúni og til stendur opna hana aftur í húsnæði á Grensásvegi. Starfsemin átti hefjast á 1. desember, en framkvæmdir við húsnæðið hafa verið stöðvaðar í óákveðinn tíma á meðan grenndarkynning fer fram. Við fjöllum meira um það á næstunni en fyrir ári síðan heimsóttum við í Samfélaginu kaffistofuna í Borgartúni til innsýn inn í starfsemina og í ljósi umræðna um Kaffistofuna ætlum við rifja upp þessa heimsókn. Bregðum okkur í Borgartúnið, þann 11. desember 2024.

Tónlist úr þættinum

Drake, Nick - River Man

Mulvey, Nick - Fever to the form

Frumflutt

25. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,