Samfélagið

Guðmundur í Brim um botnvörpuveiðar, staða skákkennslu og virkni eldra fólks

Við höldum áfram fjalla um botnvörpuveiðar og áhrif þeirra, ástand hafsins við Ísland og áform stjórnvalda um verndarsvæðum í hafi úr 1,6% lögsögunnar í 30% fyrir árið 2030. Liður í slíkri umfjöllun hlýtur vera heyra í forsvarsmönnum sjávarútvegsins - við ræðum hafið við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims sem ætlaði aldrei koma nálægt trollum - enda alinn upp af línufólki. Hann gagnrýnir aukið sérfræðingaveldi, vill stjórnvöld treysti sjómönnum og sjávarútvegsfyrirtækjum og þau fái aukna aðkomu ákvörðunum um greinina og umhverfi hennar.

Skák hefur heltekið marga í gegnum árin og fegurð íþróttarinnar ekki síst fólgin í því hve vel hún hentar öllum. Með tækniþróun hafa orðið breytingar á skákkennslu og eftir Covid varð aukning meðal þeirra sem sækja sér kennslu og mæta á skákmót. Samfélagið hitti Gauta Pál Jónsson, ritstjóra og skákkennara og fræddist um stöðu skákíþróttarinnar.

Harpa Þorsteinsdóttir, lýðheilsufulltrúi Reykjavíkurborgar, ætlar koma til okkar í lok þáttar og segja okkur allt um virkniþing fyrir eldra fólk sem fer fram í Ráðhúsinu á morgun. Á þinginu verður kynnt fjölbreytt heilsueflandi þjónusta og afþreying.

Tónlist í þættinum:

Ásgeir Trausti - Stardust.

Ljótu hálfvitarnir - Sonur hafsins.

Eivör Pálsdóttir - Við gengum tvö.

Frumflutt

18. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,