Samfélagið

Birkiyrki, fátækt og flækjustig þéttbýlis

Í hartnær hálfa öld hefur Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur unnið kynbótum á íslensku ilmbjörkinni með góðum árangri: birkiyrki úr hans smiðju hefur meðal annars verið flutt til ræktunar í birkilandinu mikla Finnlandi. Þorsteinn heldur fyrirlestur um kynbætur á birki á fræðslufundi hjá Skógræktarfélagi Íslands í kvöld og verður gestur Samfélagsins hér á eftir og segir frá kynbótum sínum og rannsóknum.

Hvernig gengur okkur takast á við fátækt á Íslandi? Þetta er spurning sem Halldór Sigurður Guðmundsson og Kolbeinn Stefánsson, dósentar, kennarar og rannsakendur við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, vörpuðu fram á félagsráðgjafaþingi síðasta föstudag. Samfélagið var á þinginu og við ræddum við þá félaga um fátækt og félagsráðgjöf.

Og í lok þáttar fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og föstum pistlahöfundi Samfélagsins.

Frumflutt

25. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,