• 00:02:36Ósanngjarnarnar kröfur um samskiptahæfni
  • 00:29:56Hafið - pistill frá Esther Jónsdóttur

Samfélagið

Ósanngjarnar kröfur um samskiptahæfileika og hafið

Oft eru gerðar miklar kröfur um samskiptahæfileika í atvinnuauglýsingum, jafnvel í störfum þar sem þeirra er ekki þörf. Þetta getur haft útilokandi áhrif fyrir einhverfa sem búa oft yfir öðrum styrkleikum sem nýtast vel í starfi. Eru gáfur jafnvel fara til spillis vegna þess vinnumarkaðurinn er of einsleitur? Í meistararitgerð með yfirskriftinni: Allir eiga vera mega hressir og með brennandi áhuga, rannsakar Bjarney L. Bjarnadóttir þessi mál. Við ræðum við hana um rannsóknina hér á eftir.

Og í dag flytjum við líka sérstakan pistil úr smiðju Estherar Jónsdóttur, pistlahöfundar Samfélagsins. Pistill dagsins fjallar um hafið og í honum komum við meðal annars við á eyjunni Maui, í kvikmyndahúsi í Reykjavík á frumsýningu merkilegrar kvikmyndar, í Háskólasetri Vestfjarða og á stöndinni við Hólmavík.

Frumflutt

30. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,