• 00:02:38Jónsbók - gervigreind fyrir lögfræðinga
  • 00:20:32Sagan í Fossvogskirkjugarði
  • 00:48:47Hnitmiðað viðtal úr safni RÚV

Samfélagið

Gervigreind fyrir lögfræðinga, sagan í Fossvogskirkjugarði, hnitmiðað viðtal um sveitina

Síðustu mánuði höfum við í Samfélaginu fjallað talsvert um mót lögfræði og gervigreindar og þá helst heyrt hvað lögfræðingar segja um gervigreind og gervigreindarlöggjöf. Í dag nálgumst við þessi viðfangsefni úr aðeins annarri átt og kynnum okkur gervigreindartól fyrir lögfræðinga. Jónsbók er nýtt tól sem gæti haft talsverð áhrif á störf lögfræðinga og nám lögfræðinema. Við fáum til okkar Thelmu Christel Kristjánsdóttur frá gervigreindarfyrirtækinu Jónsbók til segja okkur meira.

Í Fossvogskirkjugarði er finna einn stærsta skóg borgarinnar en þar er líka sagan á hverju strái. Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur byrjaði vinna þar fyrir um ári síðan við garðrækt en fór fljótlega komast ýmsum sögum um þau sem þar hvíla. Við röltum um garðinn með Bryndísi.

Og í lok þáttar kíkir Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, í heimsókn og segir okkur frá áhugaverðu og gríðarlega hnitmiðuðu viðtali úr safni RÚV.

Tónlist út þættinum:

Mitchell, Joni - This Flight Tonight.

Bjarni Björnsson - Bílavísur.

Bryan, Zach, Bon Iver - Boys Of Faith (Explicit).

Frumflutt

19. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,