Samfélagið

Helíum og aðför að loftslagsvísindum

Við verðum á vísindalegum nótum í þætti dagsins og byrjum á ræða um helín eða helíum lofttegund sem við þekkjum einna helst úr sautjánda-júní-blöðrum en gegnir einnig mikilvægu hlutverki í læknavísindum og vísindarannsóknum á hinu og þessu. En notkun okkar á þessari gastegund er langt umfram framleiðslu þetta er takmörkuð auðlind sem við göngum á og erum mjög léleg í endurnýta. Ágúst Kvaran, prófessor emeritus í eðlisefnafræði, kíkir í heimsókn hér í upphafi þáttar, segir okkur frá þessari gastegund og hvort við gætum einfaldlega klárað allt þetta helíum.

Og síðan fáum við loftslagsspjall. Arnhildur Hálfdánardóttir fær til sín Halldór Björnsson, fagstjóra veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands til ræða aðför loftslagsvísindum og vísindastofnunum í Bandaríkjunum.

Frumflutt

24. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,