Samfélagið

Slökkviliðsstjórinn í Grindavík, deildastjóri Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, rófuútskurður í Árbæjarsafni og varnartengd starfsemi

Aldrei hefur snjóað jafnmikið í Reykjavík í október, en jafnfallinn snjór mældist 27 sentímetrar við Veðurstofuna í dag. Það snjóar enn og breytast gular veðurviðvaranir í appelsínugular þegar líður á daginn. Færðin er í takt við veðrið og búast við hún versni enn. Lögreglan á Suðurnesjum mælist til þess fólk gisti ekki í Grindavík á meðan appelsínugular viðvaranir eru í gildi, en þar er óvissustig almannavarna í gildi vegna jarðhræringa. Við sláum á þráðinn til Grindavíkur og heyrum í Einari Jóni Sveinssyni slökkviliðsstjóra.

Við ræddum við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, deildarstjóra Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, um veður og færð á höfuðborgarsvæðinu.

Hrekkjavakan hefur á síðustu árum haldið innreið sína á Íslandi. Siðurinn hefur borist hingað frá Bandaríkjunum, en hátíðin á sér miklu eldri rætur sem rekja til heiðinnar hausthátíðar sem Írar og Bretar fögnuðu til forna. Það hefur verið hefð skera út grasker en ekki allir vita áður en Evrópumenn numu Ameríku og fundu graskerið, voru luktir skornar út úr rófum. Við kíktum í heimsókn á Árbæjarsafnið í gær og fengum vera viðstödd rófuútskurð.

Áhersla á varnarmál hefur aukist mikið undanfarin misseri og ætla íslensk stjórnvöld verja einu komma fimm prósent af vergri landsframleiðslu í öryggis og varnarmál fyrir árið 2035. Varnartengd starfsemi hér á landi felst meðal annars í taka á móti liðsafla bandalagsríkja NATÓ, og erum við fær um hýsa jafnvel þúsundir manna með tiltölulega skömmum fyrirvara. Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir okkur undan og ofan af varnartengdri starfsemi hér á landi.

Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.

Tónlist þáttarins:

HLJÓMSVEIT ÞORSTEINS GUÐMUNDSSONAR: Snjómokstur

RÍÓ TRÍÓ: Dýrið gengur laust

PRINS PÓLÓ: Er of seint sér kaffi núna

TODMOBILE: Abracadabra

Frumflutt

28. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,