Samfélagið

Gervigreind heimsk eða hjálpleg? Rúntað um Reykholt og heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands

Á hvaða sviðum er gervigreindin gagnleg og á hvaða hátt er hún heimsk? Á dögunum hélt einn helsti gervigreindarsérfræðingur Norðurlandanna, Serge Belongie, prófessor í tölvunarfræði við Kaupmannarhafnarháskóla og forstöðumaður Pioneer-stofnunarinnar um gervigreind, fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík. Markmið hans var svipta hulunni af meintum töfrum gervigreindarinnar og hvetja til Norræns samstarfs í þróun hennar. Pétur Magnússon ræddi við Serge um heimsku gervigreindarinnar, valdaójafnvægi í þróun tækninnar og framtíð gervigreindar á Norðurlöndunum.

Við förum á rúntinn í Reykholti í Biskupstungum með Helga Kjartanssyni, oddvita sveitarstjórnar Bláskógabyggðar. Þar um slóðir boruðu menn sig nýlega niður á sjóðheitt vatn í miklu magni, sem er mikil búbót fyrir samfélagið. Við ræðum við hann um þennan happafund og þorpið Reykholt sem stækkar ört með tilheyrandi vaxtarverkjum.

Við förum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands og hittum fyrir Hans Hreinsson, skjalavörð. Þar koma bæði Zeppelin loftskip og skipaverkfræði við sögu.

Tónlist í þættinum:

TRAVIS - Selfish Jean

ÁSGEIR TRAUSTI - Öldurótið

Frumflutt

17. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,