Samfélagið

LJósvist á Íslandi, rústabjörgun, málfar og vísindaspjall

Undanfarna 17 daga hefur staðið yfir mikil björgunaraðgerð í Himalayafjöllunum þar sem 41 verkamaður festist í jarðgöngum sem féllu saman. Mennirnir náðust allir út úr göngunum heilir á húfi í gær og voru dregnir á börum eftir 90 sentímetra breiðu röri. Rætt við Magnús Örn Hákonarson björgunarsveitarmann og sérfræðing á sviði rústabjörgunar.

Ólíkt því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum eru litlar sem engar kröfur gerðar um góða ljósvist í íslenskum byggingum - jú, samkvæmt byggingareglugerð þurfa vera gluggar en það er ekkert því til fyrirstöðu byggja annað hús beint fyrir utan þá. Þessu vill vinnuhópur sem hefur unnið tillögum til breytinga á byggingareglugerðinni breyta. Við ræðum lýsingu og ljósvist við Ástu Logadóttur, verkfræðing og lýsingarsérfræðing hjá Lotu en hún á sæti í nefndinni og kynnti tillögurnar í dag.

Við heyrum eina málfarsmínútu og endurflytjum svo vísindaspjall við Eddu Olgudóttur frá því fyrr á árinu.

Frumflutt

29. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,