Samfélagið

Rannsókn á heimilisleysi kvenna, innkauparáð og gervigreind í fréttamennsku

Nýlega voru birt fyrstu áfangagögn verkefnisins, Landsskýrsla INTERACT. Hún veitir innsýn í það hvernig sex Evrópuríki, Þýskaland, Grikkland, Ítalía, Portúgal og Rúmenía, auk Íslands, nálgast málefni heimilislausra kvenna. Niðurstöðurnar sýna víða skortir á samþættingu jafnréttis- og kynjasjónarmiða, þjónusta við heimilislausar konur er stórum hluta brotakennd og ósamþætt og tekur of lítið mið af áhrifum áfalla á líf kvenna. Íslensku samstarfaðilarnir RIKK, rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og Rótin félagasamtök bera ábyrgð á því niðurstöðurnar nýtist til innleiða nýja nálgun. Þær Kristín Hjálmarsdóttir frá RIKK og Kristín Pálsdóttir frá Rótinni kíkja til okkar.

Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur, flytur okkur hugvekju um kauphegðun, þegar margir afsláttardagar eru framundan. Hann veltir því upp hvað séu góð kaup og gefur góð ráð.

Í lok þáttar kemur Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarsérfræðingur, svo til okkar og segir okkur allt um hvernig gervigreind færir sig sífellt meira yfir í hlutverk blaða- og fréttamanna. En rannsókn Breska ríkisútvarpsins, BBC, bendir til þess gervigreindinni ekki treystandi til segja okkur fréttir.

Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.

Tónlist þáttar:

BON IVER - There's is a rhythmn

ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Lilju rós

THE NEW EVES - Red brick

Frumflutt

6. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,