Samfélagið

Nóbelsverðlaunahafinn umdeildi James Watson, Rosalind Franklin og COP30

Í dag köfum við í erfðafræði og vísindasagnfræði nóbelsverðlaunahafinn James Watson, sem hlaut nóbelinn árið 1962, ásamt þeim Francis Crick og Maurice Wilkins, fyrir uppgötvanir sem tengdust uppbyggingu DNA lést á dögunum. Hann var síðasti eftirlifandi meðlimur þessa þríeykis. En ferill þessa merkilega manns er áhugaverður og gríðarlega umdeildur í dag setjumst við niður með Arnari Pálssyni erfðafræðingi við Háskóla Íslands til setja feril hans í samhengi og átta okkur á hvað hann getur sagt okkur um stöðu erfðafræðinnar og jafnvel vísindanna í nútímasamfélagi.

Við fáum líka pistil frá Stefáni Gíslasyni, föstum pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag veltir hann fyrir sér COP30-loftslagsráðstefnunni, sem eins og hlustendur Samfélagsins vita vel fer fram þessa dagana í Belem í Brasilíu.

Tónlist úr þættinum:

Marling, Laura - Patterns.

Stereolab - The free design.

Nick Drake - Hazey Jane I

Frumflutt

20. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,