Samfélagið

Afdrifaríkt ár í lífi mæðgna frá Grindavík, kórmótmæli við menningar- og viðskiptaráðuneytið

styttist í ár verði liðið frá því ólgan undir Grindavík náði nýjum hæðum og bærinn var rýmdur í skyndi. Í fyrra ræddi Samfélagið við mæðgurnar Lillý og Sjönu - Lillý er hársnyrtimeistari og rak stofu í Grindavík, Sjana bjó á elliheimilinu Víðihlíð. Í dag förum við aftur í heimsókn til þeirra, lítum yfir farinn veg og heyrum hvernig þeim reiddi af í nýjum aðstæðum fjarri Grindavík.

Fyrir um tveimur mánuðum var stofnaður svokallaður samstöðukór fyrir Palestínu; sem samanstendur af fólki sem hefur síðan komið saman alla miðvikudagsmorgna til syngja fyrir utan ráðuneyti og krefjast þess stjórnvöld beiti sér gegn þjóðarmorðinu á Gaza. Samfélagið mætti á eitt af fyrstu mótmælaviðburðum kórsins en ýmislegt hefur breyst síðan. Ríkisstjórnin er sprungin, búið er skipta út ráðherrum í nokkrum ráðuneytum og boða til kosninga. En kórinn syngur áfram. Við brugðum okkur niður í þar sem kórinn kom saman fyrir utan skrifstofur menningar- og viðskiptaráðuneytisins til freista þess syngja fyrir Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra.

Tónlist og stef úr þætti:

GRINDAVÍK ft. Daddi Willard - Og þeir skora (Grindavíkurlagið).

Frumflutt

6. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,