Samfélagið

Framtíð Kaffistofu Samhjálpar, skotið á dróna Fiskistofu - nýr veruleiki í fiskveiðieftirliti?

Í meira en fjóra áratugi hefur kaffistofa Samhjálpar tekið við fólki sem hafa ekki tök á sjá sér fyrir mat sjálft, veitt þeim tímabundið húsaskjól og gefið þeim borða. Starfsemi kaffistofunnar hefur þróast og breyst í gegnum árin og segja starfsemin hafi aldrei verið mikilvægari en í dag. Þó er framtíð kaffistofunnar óljós, en Samfélagið kíkti í heimsókn til fræðast um starfsemina í Borgartúni.

Á dögunum varð eftirlitsmaður Fiskistofu fyrir því skotið var á dróna sem hann nýtti til eftirlits. Þetta var í þröngum firði vestur á fjörðum og skotin glumdu, þrjú í röð. Manninum var brugðið - enda skammt undan sjálfur, stjórna drónanum. Viðar Ólason, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs, fiskistofu, er gamall sjómaður. Hann bindur vonir við atvikið hafi verið undantekning en veit andúð í garð Fiskistofu grasserar í sumum hópum. Við ræðum þetta alvarlega atvik við Viðar og einnig um fiskveiðieftirlitskerfið í heild, kosti og galla.

Tónlist í þættinum:

BARR - Allt haf.

Frumflutt

11. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,