Samfélagið

Heiðursmorð og annað ofbeldi, Háskóli unga fólksins, málfar og dómsmál um „græna“ grísi

Það var sláandi fyrirsögn á visi.is í síðustu viku, þar sem faðir ungrar konu segir, Hefði slátrað dóttur sinni byggju þau í arabalandi. Svokölluð heiðursmorð tíðkast í mörgum ríkjum, þau tengjast æru fjölskyldunnar og allir taka þátt, foreldrar, systkini og jafnvel ömmur og afar. Slíkt mál var þingfest í síðustu viku hjá Héraðsdómi Reykjaness, þar sem átta manns er ákært fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Stígamót vinna með alla vega mál sem koma upp, þar sem ofbeldi á sér stað, bæði gagnvart íslenskum konum jafnt og erlendum. Við ræðum við Drífu Snædal talskonu Stígamóta eftir skamma stund.

Stjarneðlisfræði, mennska, gervigreind, sýndarveruleiki og áfram telja. Háskóli unga fólksins er í fullum gangi í Háskóla Íslands þar eru 250 nemendur á aldrinum 12-14 ára kynnast heimi fræða og vísinda og stundatafla vikunnar ansi þétt. Við ræðum við skólastjórann, Kristínu Ásu Einarsdóttur, og tökum púlsinn á krökkunum sem sum eru komin með skýrari mynd af því hvernig þau vilji svara spurningunni sem sífellt dynur á ungu fólki - hvað ætlarðu verða þegar þú verður stór.

Við heyrum málfarsmínútu og svo fáum við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna í spjall um grísi sem sagðir voru grænir en ekki reyndist innistæða fyrir slíkum fullyrðingum.

Tónlist:

VALDIMAR - Blokkin.

SCORPIONS - Wind Of Change.

MOSES HIGHTOWER - Lyftutónlist.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.

Frumflutt

11. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,