Samfélagið

Blái herinn, fuglatalningar að vetrarlagi og glúteinóþol

Umhverfisverndarsamtökin Blái herinn fagna 30 ára afmæli í ár. Herinn hefur lagt áherslu á baráttuna við plastmengun í hafinu með hreinsunarstörfum, hvatningu og vitundarvakningu. Tómas J. Knútsson, stofnandi Bláa hersins, ætlar setjast með okkur í upphafi þáttar og fara aðeins yfir starfsemi samtakanna og ræða hvað er fram undan hjá Bláa hernum.

Sjötíu ár eru frá því byrjað var telja fugla vetrarlagi og er markmið talninganna kanna fjölda og dreifingu einstakra tegunda í mismunandi landshlutum.

Náttúrufræðistofnun hefur um langt skeið skipulagt fuglatalningar áhugamanna sem sinna þeim í sjálfboðavinnu um áramótin. Talningasvæðin eru dreifð um láglendi um allt land en flest eru við sjávarsíðuna þar sem flestra fugla er von á þessum árstíma. Aldís Erna Pálsdóttir, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, kíkir til okkar og segir okkur allt um fuglatalningar og hverjir geta orðið sjálfboðaliðar.

Í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, til okkar í sitt vikulega spjall. Í dag ætlar hún fræða okkur um glútenóþol. En við byrjum á Bláa hernum.

Tónlist úr þættinum:

Johnson, Jack - Only the ocean.

Ritt Momney - Put Your Records On.

Beatles, The - Ob-la-di, ob-la-da.

Frumflutt

3. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,