Samfélagið

Hugmyndahraðhlaup fyrir heilbrigðiskerfið, Sjóvarnir og sjávarflóð, Formaður Póstfreyjufélagsins 1969

Vandamál heilbrigðiskerfisins voru í forgrunni á hugmyndahraðhlaupi um helgina. Þar safnaðist saman skapandi fólk sem reyndi finna lausnir á biðlistum, óskilvirkum tilvísunum og óeinstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu. Hugmyndahraðhlaupið var á vegum Klak Icelandic Startups og í dag ræðum við við Atla Björgvinsson og Frey Friðfinnsson frá Klak um hugmyndahraðhlaup, nýsköpun og heilbrigðistækni.

Sjóvarnargarðar eru víða laskaðir eftir sjávarflóð í síðustu viku. Á Granda í Reykjavík varð mikið tjón á atvinnuhúsnæði, alda hreif tvo menn með sér á Akraneshöfn og sumarhús í Suðurnesjabæ voru umflotin sjó. Við ræðum þennan veðurofsa, orsakir hans og aðgerðir vegna hans við Sigurð Sigurðarson, strandverkfræðing hjá Vegagerðinni.

Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins kemur til okkar í lok þáttar - við skyggnumst inn í líf bréfbera á sjöunda áratugnum.

Tónlist:

Una Torfadóttir - Dropi í hafi.

Bombay Bicycle Club - Luna.

Frumflutt

10. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: samfelagid@ruv.is

Þættir

,